top of page
Search

Aðalfundur Lúðrasveitar Mosfellsbæjar 2026

Stjórn Lúðrasveitar Mosfellsbæjar boðar hér með til aðalfundar félagsins sem haldinn verður sunnudaginn 15. mars 2026, kl. 15:30, í húsnæði Skólahljómsveitarinnar (kjallarinn).

 

Dagskrá aðalfundar

  1. Setning fundar

  2. Kosning fundarstjóra og fundarritara

  3. Skýrsla stjórnar lögð fram

  4. Reikningar lagðir fram til samþykktar

  5. Lagabreytingar

  6. Kosning stjórnar

  7. Kosning skoðunarmanns reikninga

  8. Önnur mál

  9. Fundarslit 


Rétt til fundarsóknar

Samkvæmt lögum lúðrasveitarinnar hafa félagsmenn, þ.e. þeir sem starfað hafa með hljómsveitinni undanfarið haust, rétt til setu á fundinum og atkvæðagreiðslu.


Skil á erindum

Ef félagar vilja leggja fram mál til umfjöllunar á fundinum skulu þau berast stjórn, með tölvupósti á ludrasveitmos@gmail.com, fyrir lok dags föstudaginn 14. mars 2026.


Boðið verður upp á kaffi og kökur á fundinum.


Virðingarfyllst, Stjórn Lúðrasveitar Mosfellsbæjar


 
 
 

Recent Posts

See All
Vortónleikar 10. maí 2026

Lúðrasveit Mosfellsbæjar hélt vortónleika sína í Harðarbóli þann 10. maí síðastliðinn. Tónleikarnir heppnuðust með eindæmum vel og skemmti fólk sér undir fögrum tónum sveitarinnar og gæddi sér svo á k

 
 
 

Comments


bottom of page