
Vortónleikar 10. maí 2026
- ludrasveitmos
- 2 days ago
- 1 min read
Lúðrasveit Mosfellsbæjar hélt vortónleika sína í Harðarbóli þann 10. maí síðastliðinn. Tónleikarnir heppnuðust með eindæmum vel og skemmti fólk sér undir fögrum tónum sveitarinnar og gæddi sér svo á kræsingu í hléi.
Lúðraveitin vill færa öllum þeim sem komu á tónleikana kærar þakkir fyrir frábærar móttökur og yndislega samveru.
Að fylla salinn af tónlist, hitta fólk úr bænum og njóta kaffisamsætis í hléi var dýrmæt gleðistund.
Þetta minnir okkur á hvað menningarlíf skiptir miklu máli í samfélaginu okkar, að fólk komi saman, njóti og skapi góðar minningar.
Við viljum einnig þakka öllum okkar styrktaraðilum og velunnurum innilega fyrir stuðninginn. Án ykkar væri ekki hægt að byggja upp og halda úti öflugu tónlistarstarfi í bænum. Stuðningurinn skiptir okkur gríðarlega miklu máli.
Meira svona í Mosfellsbæ. Meiri tónlist, meiri samvera og öflugra menningarlíf.
Takk fyrir okkur!



Comments