top of page
Fréttir
Vortónleikar 10. maí 2026
Lúðrasveit Mosfellsbæjar hélt vortónleika sína í Harðarbóli þann 10. maí síðastliðinn. Tónleikarnir heppnuðust með eindæmum vel og skemmti fólk sér undir fögrum tónum sveitarinnar og gæddi sér svo á kræsingu í hléi. Lúðraveitin vill færa öllum þeim sem komu á tónleikana kærar þakkir fyrir frábærar móttökur og yndislega samveru. Að fylla salinn af tónlist, hitta fólk úr bænum og njóta kaffisamsætis í hléi var dýrmæt gleðistund. Þetta minnir okkur á hvað menningarlíf skiptir mi
ludrasveitmos
2 days ago1 min read


Styrkur úr lista- og menningarsjóði Mosfellsbæjar
Lúðrasveit Mosfellsbæjar tók á móti veglegum styrk frá Mosfellsbæ þann 30. apríl. Við erum svo sannarlega þakklát fyrir stuðninginn! Það er að mörgu að huga við uppbyggingu á slíku starfi og því ómetanlegt að finna fyrir trausti og velvilja frá nærsamfélaginu. Við hlökkum til að halda áfram að vaxa og dafna, og vera hluti af tónlistarlífi bæjarins.
ludrasveitmos
May 31 min read


Opin æfing
Við fögnum fyrsta formlega starfsári sveitarinnar með opinni æfingu í æfingaaðstöðu okkar í Varmárskóla, að Skólabraut 1! Við hvetjum fólk til að koma og hlusta eða mæta með hljóðfæri og spila með! Við viljum endilega bæta við félögum í hópinn og hvetjum því áhugasöm að mæta.
ludrasveitmos
Feb 281 min read
Aðalfundur Lúðrasveitar Mosfellsbæjar 2026
Stjórn Lúðrasveitar Mosfellsbæjar boðar hér með til aðalfundar félagsins sem haldinn verður sunnudaginn 15. mars 2026, kl. 15:30, í húsnæði Skólahljómsveitarinnar (kjallarinn) . Dagskrá aðalfundar Setning fundar Kosning fundarstjóra og fundarritara Skýrsla stjórnar lögð fram Reikningar lagðir fram til samþykktar Lagabreytingar Kosning stjórnar Kosning skoðunarmanns reikninga Önnur mál Fundarslit Rétt til fundarsóknar Samkvæmt lögum lúðrasveitarinnar hafa félagsmenn, þ.e.
ludrasveitmos
Feb 281 min read
bottom of page
